Tuesday, April 18, 2006
er búin að fá nóg af að vera með þessa blogdrive síðuu þar sem að þaþ fer alltaf allt í eitthvað rugl þegar ég reyni að breyta henni og er þannig flutt aftur á gömlu síðuna mína eða www.bingokula.blogspot.com eða bara með því að klikka á þetta
hérnaþannig að þeim sem langar að halda áfram að lesa hvað á daga mína drífur geta haldið áfram að fylgjast með mér þarna
takk takk
Posted at 06:06 pm by bingokula
Páskar og heimilisofbeldi.....
jæja þá eru páskarnir að verða búinir eftir sína ótrúlega leiðinlegu tímasetningu þar sem að prófin eru bara strax eftir páska......
páskarnir voru nú samt sem áður alveg ágætir, gamla settið skellti sér norður á meðan ég var skilin eftir heima að passa Atla (enda ábyrgarfullt starf skal ég segja ykkur) svo var mamma hans Atla svo væn að gefa okkur páskamat og annanípáskum mat þannig að ekki sveltum við þrátt fyrir að hafa verið ein heima....
lítið var um heimilisofbeldi þessa páskana þó að það hafi nú samt sem áður borið örlítið á því...þó kannski ekki nema einn marblettur í bitfara formi og vil ég taka fram að ég átti ekki neinn þátt í þeim bletti þó ég beri hann samt sem áður !
en sumarið er að koma og því fylgir framkvæmdir í kjallara svo ég geti flutt þangað, utanlandsferðir og annað skemmtilegt eins og sundferðir me henni Auði minni sem að kemur einmitt heim eftir 3 vikur þannig að ég má fara að hlakka til :)
Posted at 03:42 pm by bingokula
Wednesday, April 12, 2006
Í dag las ég í blaðinu að fjölgun hafi orðið í húsdýragarðinum, en það er þannig að geit í garðinum átti kiðling....og það var heldur betur stór grein um þetta og meira segja mynd af móður og unganum en öllum heilsaðist vel eftir atvikum......
þá kemur sú hugsun upp hjá mér að maður sé nú heldur betur ekki merkilegur þar sem að ef að ég tæki upp á því að unga út eins og einu stykki barni þá kæmi nú mest lítið um það í blaðinu og hvað þá mynd af mér....og ég veit ekki betur að vinir mínir sem að eru búin að eignast börn á seinasta heila árinu að ekki hefur heldur neitt komið um það í blaðinu......þá er pælingin eru húsdýrin orðin merkilegri en við? á maður að setja sér það markmið að komast í blaðið eingöngu fyrir það að pillan eða smokkurinn hafi klikkað?
góð pæling !
Posted at 08:57 pm by bingokula
Tuesday, April 04, 2006
var rétt í þessu að taka gáfnapróf á netinu og var það bara eins og ég átti von á enda er ég einstaklega mikill snillingur !!! en þetta var það sem að ég fékk út
Your Result Type Is: Precision Processor! veit ekki hvort þetta kemur ykkur hinum á óvart.....en ég er náttúrulega svo ótrúlega klár.....
Posted at 09:10 pm by bingokula
Friday, March 17, 2006
.....hvenær er hægt að segja að maður sé orðinn fullorðinn, er það einhver sérstakur dagur á ári eða þegar maður verður ákveðið gamall.....ég get sagt í fullri hreinskilni að ég þekki fólk sem að er orðið "fullorðið" samkvæmt kerfinu en í rauninni að mínu mati er það ekki fyrir 5aur fullorðið....ekkert frekar en ég sjálf....en núna á ég að heita fullorðin samkvæmt kerfinu og þarf að borga skatta og bera ábyrgð á því sem að ég segji,geri og skrifa undir því að ég á engan forráðamann lengur....en afhverju upplifir maður sig þá ekki fullorðin....það er enn komið fram við mann eins og krakka og maður verður alltaf barn foreldra sinna og ég horfi jafnvel enn á teiknimyndir......ég er með kenningu afhverju svona mörgum liggur á að eignast börn ung en það er afsökun fyrir að verða í raun aldrei fullorðin.....þarft bara að vera fullorðin í smá tíma þangað til að maður er búinn að unga út einu barni og þá getur það farið að hegða sér eins og barn aftur...leikið sér og horfa á teiknimyndir með barninu (nema það hafi aldrei hætt því eins og ég)....þanngi að ég held að niðurstaðan sé sú að ég verði að fullorðnast fyrr eða seinna þar sem að ég er ekki að fara að unga út einu stykki barni á næstunni.........
Posted at 06:12 pm by bingokula
Wednesday, March 15, 2006
Hálskirtlataka orsakar mikil leiðindi....hljómar mjög vel að fá að hanga heima og horfa á sjónvarpið í allavegana viku og bara borða ís.....en allt kemur fyrir ekkert.....þetta er hreint út sagt ömurlegt.....opið sár í hálsinum, vont að kyngja, vont að tala, vont að gera flest allt....þannig að eins og þið sjáið þá er þetta ekkert voðalega spennandi.....væri algjörlega dáin úr leiðindum ef að Strúna væri ekkki svona mikið gull að hafa fært mér fullt af DVD myndum og alla fyrstu seriuna af Desperat housewives sem að ég horfði á í næstum því einni lotu og ætti það að vera vísbending um hve mikið mér er búið að leiðast....er jafnvel búin að spila tölvuleiki á netiun í meira en klukkutíma.....eina sem að er gott við þetta er að það er stjanað við mann út og inn....
.....svo vill ég bæta því við að hann Atli minn er æði.....og geðveikt sætur....
Posted at 01:26 pm by bingokula
Tuesday, March 07, 2006
Hvað ætli málið sé með hálskirtlana......þeiru eru þarna og hljóta að þjóna tilgangi enda gera þeir það:
(tekið af vísindavef háskólans)
Hálskirtlar eru gamalt heiti á líffærum úr eitilvef sem heita réttu nafni gómeitlur (e. palatine tonsils) en eru einnig nefndir kverkeitlur. Eitlur (e. tonsils) tilheyra ónæmiskerfi líkamans og taka því þátt í vörnum hans gegn sýklum.
Eitlur eru alls fimm, tvær gómeitlur, tvær nefeitlur og ein kokeitla, og raða þær sér í hring í kokinu. Eitlurnar liggja þétt upp að slímhúð á ákveðnum stöðum í nefholi og kverkum og eru staðsettar þannig að eitilfrumur í þeim geti náð sýklum á leið inn í líkamann með fæðu og lofti sem við öndum að okkur.
Við störf sín geta eitlur sýkst og við fáum eitlubólgu (e. tonsilitis). Sýkist eitla oft gerir hún meiri skaða en gagn og getur þá þurft að fjarlægja hana. Hinar eitlurnar sem eftir eru sinna þá hennar störfum að mestu leyti. Þess vegna getum við verið án þeirra þótt betra sé að hafa eitlurnar allar.
Þannig að það er alveg búið að sanna að þeir þjóna tilgangi....skil ekki afhverju það þykir ekkert tiltöku mál að kippa þeim bara sí svona úr....en ég er sem sagt að fara í hálskirtlatöku á föstudaginn og er bara ekkert sátt við að þeir ætla bara að taka eitthvað líffæri úr mér og henda því og svo bara senda mig heim 5 tímum seinna.....
Posted at 10:17 pm by bingokula
Monday, March 06, 2006
jarðskjálfti austnorðuaustur af Krísuvík....ekki langt frá Hafnafirði upp á 4,3 á Richter skalanum og ég sit uppi í skóla og finn ekki neitt á meðan allir aðrir eru að tala um þennan jarðskjálfta sem að þeir fundu fyrir hér og þar í skólanum.....svekkjandi að vera það utan við sig að finna ekki neitt fyrir þessu en vera fljótustu að finna á netinu stærð og staðsetningu....hvað segir það um mig......
Posted at 02:51 pm by bingokula
Sunday, February 19, 2006
jæja ég var víst næld af henni Unnsu minni og ætla þess vegna að blogga þar sem að það var hún en ekki einhver annar sem að nældi mig !
Fjögur störf sem ég hef unnið:
# Hagkaup
# Skrifstofunni hans Pabba
# Kaffi Fjörður
# Lækjarbrekka
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
# Kóngsbakki, Breiðholt
# Álfhólsvegur, Kópavogur
# Birkenalleé, Zeuthen, Þýsklandi
# Breitenstrasse, Magdala, Þýskalandi
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla:
# Desperate Housewives
# Simpson
# Friends
# Grey's Anotomy
Fjórir staðir sem ég hef ferðast til:
# Mallorca
# Danmörk
# Grikkland
# London
Fjórar vefsíður sem ég skoða daglega:
# www.mbl.is
# www.baggalutur
# www.hk.is
# og fullt af bloggsíðum
Fjórar uppáhalds matartegundir:
# Kjúklingur
# Grænmetisbuff
# Ferskt túnfisksalat
# Kús kús
Fjórir geisladiskar sem ég get ekki verið án:
#Rock and roll realschule, die Ärtze
#International Superhits, Green day
#Miseducation of Lauren Hill, Lauren Hill
#New beginning, Tracy Chapman
Svo fjórir sem ég skora á
# Aldís
# Auður
# Hildur Einars
# Gréta
Posted at 09:36 pm by bingokula
Wednesday, December 14, 2005
.....er ein og yfirgefin uppi í Hamrahlíð....skólinn hefur aldrei verið jafn drungalegur.....er búin að sitja ein mest megnis af deginum á bókasafninu og er alltaf að heyra einhver undarleg hljóð...held reyndar að það sé nú mest megnis ýmindun í mér vegna svefnleysis og of mikillar koffínneyslu.....
fór í íslenskupróf í morgun og opnaði prófið og fékk áfall...fullt af námsefni sem að ég kannaðist voðalega lítið við....hafði sé þetta áður en mig minnti nú alls ekkert að fyrsti málfræðingurinn væri til prófs á ísl403 prófi.....allt í einu var pikkað í mig og mér bennt á það að ég sæti í ísl203 prófi og ætti að færa mig í næstu röð......
prófalok eftir 4 og hálfan tíma !!!
Posted at 03:11 pm by bingokula