Thursday, December 08, 2005
vá hve þunglyndislegt er það þegar klukkan er bara 3 o g það var aðkveikna á ljósastaurunum....leiðinlegt veður, mikið að læra og tvö próf eftir....frekar þunglyndislegt...
hef þess vegna ákveðið að eyða deginum í dag í allsherjar þunglyndi og ég býð öllum þeim sem að vilja vera með velkomna því það er pláss fyrir alla sem eru tilbúnir að leggja sig fram í þunglyndi ! fólk getur líka notað tækifærið og klárað þunglyndiskvóta mánaðarins svo að þetta sé ekki að læðast upp að fólki svona seinustu dagana fyrir jól.....þannig að drífið ykkur !!!
Posted at 03:01 pm by bingokula
Wednesday, December 07, 2005
jæja þá eru bara 2 próf eftir (af 3 reyndar en það er nú önnur saga) en já ég er sem sagt búin í líf203 og á stæ403 og ísl403 eftir og ég tek þau bæði á miðvikudaginn í næstu viku og þá er ég bara búin í prófum.....en núna er lítið annað í gangi en að læra......ótrúlegt hvað maður er nú samt dugleg að finna mér eitthvað annað sniðugt að gera heldur en að læra.....það er bara alltaf þannig í prófum að það er svo margt annað spennandi til að gera....en svo þegar það er ekkert hjá manni að gera þáer í alvörunni ekkert að gera og ekkert spennandi til að dunda sér við....ég er farin að halda að þetta sé eitt allsherjar samsæri gegn námsmönnum sem að vilja gera allt sem að í þeirra valdi stendur til að standa sig vel.....
Svo er maður að fatta að útlendingarnir manns fara að kíkaj aftur á klakann frá Danaveldi....en Gréta, Unnur og Steinar eru að koma heim um jólin og er það svo sannarlega eitthvað til að gleðjast yfir.....er enn að lifa á því að þau hafi komið í helgarferðir hingað heim og maður fékkað hitta þau !!! enda skulda þær mér stöllur báðar ísrúnt í fákafenið....
Svo bara smá hérna í lokinn.....ef að þið þið ættuð að útnefna
manískustu vinkonu mína hver væri það ?forvitnustu vinkonuna ?
drukknustu vinkonu mína ?mest utan við sig vinkonu mína ?
hverjar mynduð þið nefna.....nú er spurning hver tekur hvað til sín......
og já bara til að deila með ykkur.....stelpur munið þið eftir því þegar hún Lilja okkar giftis jólatréinu heima hjá sér og Gréta hringdi skemmtileg símtöl í missniðugt fólki ? var að rifja upp þetta partý....var algjör snilld.....enda vann Lilja sér þar inn nafngiftina Lilja ofurkjúlli og ber það enn með prýði....spurning hver ætlar að taka að sér að halda partýið í ár......alveg komin tími til að halda annað......byrja á því að kasta boltanum til hennar Hildar hvað þetta varðar og svo verður hún að sjá hvort hún kasti honum áfram eða reyni að skora sjálf.....segi bara áfram Hildur.....
Posted at 01:33 pm by bingokula
Saturday, December 03, 2005
er mál raungreinanna og í auglablikinu tala ég það mál alls ekki....aðfellur, láfellur, skáfellur, diffra, markildi samfeldi, og margt fleira sem að gæti þess vegna verið kínverska fyrir mér eins og er.....þannig ég lýsi hér með eftir stærðfræði orðabók ef að einhver á.....helst á tölvutækuformi ef hægt er ......
Posted at 03:19 pm by bingokula
Thursday, December 01, 2005
já þá er það sko heldur betur skollið á....fyrsta próf á mánudaginn og það er erfðafræðin þannig ef að þú þarft að vita eitthvað um erðafræði endilega bjallið í mig og Auði...erum ekkert smá klárar í þessu. En þar sem að prófin eru að byrja þá fer maður alltaf að gera allt annað en það sem að maður á að vera að gera.....það er til dæmis komið hádegi og ég bara rétt byrjuð að læra...en það gæti þá líka verið að maður verði duglegri að henda einhverju hérna inn til að forðast það að vera að læra.....ekki það að erfðafræði sé ekki alveg glimrandi skemmtileg.....
var svo einmitt í þessum töluðu orðum að klára jarðfræði ritgerð sem að ég er búin að vera að vinna í seinustu daga og er ég bara svona ótrúlega ánægð með hana þó að sumir hefðu alveg verið tilbúnir að setja út á hana......en um leið og ég er búin að skila þessari ritgerð að þá er þessari önn formlega lokið hjá mér og ef að guð leyfir þá á ég bara eina önn til viðbótar eftir af menntaskólanum, en ef að það á að ganga eftir verður maður að vera dugleg í próflestrinum.
en núna er hún Auður mín komin að sækja mig og við ætlum að fá okkur eitthvað sniðugt í goggin þar sem að maður verður nú að vera góður við mann sjálfan þegar maður er að læra undir próf.....þannig að þið hin sem að eruð í próflestir gangi ykkur vel og þið hin getið bara átt ykkur !
yfir og út
Posted at 12:53 pm by bingokula
Thursday, November 24, 2005
já það var verið að skamma mig að vera ekki að blogga....en það er svo oft að ég opna síðuna til að fara að blogga og akkúrat þá dettur mér bara ekki neitt í hug....og það er nú bara voðalega lítið öðruvísi akkúrat núna.....nema að fólki langi að vita eitthvað um gosið í Mt. Pelée 1902....er að verða frekar mikið fróð um það þessa dagan þar sem að ég er að skrifa alveg hörku ritgerð um gosið.....afar áhugavert....
skellti mér á White stripes tónleikana um daginn með Hildi, Saadiu og Atla og voru þetta alveg hörku tónleikar og það er nú langt síðan að ég var á svona góðum tónleikum.....enda hef ég ekki farið á tónleika í eitt og hálft ár.....en ég og Mista tókum þá ákvörðun að við ætlum að skella okkur á Hróaskeldu næsta sumar og ætlar hún Lilja að koma með okkur þannig að þá er ég alveg á fullu að uppfylla af "what to do" listanum mínum....er náttúrulega búin að vera skiptinemi og fara á interrail og svo verður það bara næst Hróaskelda og svo er það bara að flytja út í skóla :) þetta er nefnilega hin ágætasti listi......
svo eru prófin bara alveg að skella á þannig að það er lítið annað inni í myndinni en að drekkja sér í lærdómi og eins og oft vill gerast í próflestri þá er maður meira en venjulega á netinu þannig aldrei að vita nema að maður detti inn í það að blogga reglulega aftur.....þannig að núna geta allir setið heima spenntir og sé hvað gerist....
en spennandi atburði tengdir Mt. Pelée bíða mínn þannig
yfir og út.....
Posted at 12:04 am by bingokula
Thursday, November 10, 2005
langaði nú bara aðalega að deila því með ykkur hvað hún Auður vinkona mín er mikill api....
henni finnst mjög gaman að bíta fólk og er að margar mati kannski bara alveg snarrugluð...en þið sem að haldið það ættuð bara að vita hve ómissandi hún er hérna í MH....held hreinlega að ég og Villi myndum hreinlega mygla án hennar í jarðfræði og líffræði.....ekki það að ég sé eitthvað að draga úr því að hún sé alveg snarrugluð en er bara að benda á það hvað það þarf ekki alltaf að vera neikvætt...t.d. hélt þessi snótu uppi miklu fjöri á Interrailinu okkar í sumar og er ég ekki frá því að maður hafi sjálfur orðið létt rugluð á því að vera heilar 5 vikur samfleytt með henni....en Auður mín þú ert algjört æði :)
annars ekkert skemmtilegt í fréttum nema hvað að maður er komin með vinnu á Lækjarbrekku sem þjónn....er að vinna þar með henni Lilju og við erum voðalega flottar á því þarna....í voða fínum fötum og læti......
en eins og ég sagði þá vildi ég bara deila þessu með ykkur um hana Auði litlu.....
Posted at 11:51 am by bingokula
Monday, October 31, 2005
já eins og flestir vita sem að þekkja mig vel að ég á alveg frábærann pabba sem að smyr ennþá nesti handa mér á morgnanna....veit að þetta hljómar eins og maður sé dekraður en þetta er algjörlega af hans frumkvæði, er ekkert að biðja um þetta....kallinn bara gerir þetta....og eins og aðra morgna smyr kallinn þessar dýrindis tvær samlokur handa mér með uppáhaldsbaruðinu mínu og lagði kallinn sig extra fram við að gera þetta skemmtilegt handa mér....svo fer mín bara upp í skóla og sest á borðið mitt og set brauðið á borðið eins og alla aðra morgna.....fer svo í tíma og loks þegar ég kem aftur full af tilhlökkun að borða nesti mitt....er það ekki bara HORFIÐ....aldrei lent í öðru eins....aldrei hefur nestið mitt horfið þannig að ég fer nú að litast um eftir sönnunargögnum sem að gætu legið einhver staðar inni í Rauða-herbergi en allt kemur fyrir ekkert og ég bara finn ekki neitt.....þannig að núna er ég komin á það að skúringarfólkið hafi hent því....þau eru alltaf að taka til á borðunum okkar og henda einhverjum blöðum sem að liggja á því og í þetta skiptið hafa þau ábyggilega gripið brauðið mitt með og hennt því samviskulaus og hafa ekkert pælt í því að eitthver ungmenni yrði nú ákaflega svangt þar sem að þetta var eina nestið sem að það kom með.....þannig að ég var bara svöng í skólanum þangað til að hún Hildur mín var svo elskuleg að koma að sækja mig og hugga og fara með mig eitthvert sem að ég gat fengið mér að borða.......þannig að það er heldur betur ekki skúringarfólkinu í MH að ég lifði af þennan skóladag það er sko alveg á hreinu !!!
úff en nóg um nestið mitt...þó ég sé enn ekki sátt að því hafi verið hent....þá er ég búin að vera að skrifa ritgerð þessa dagana og er loksins farin að sjá fyrir endan á þessu öllu þó að það sé nú líka stærðfræðipróf eftir í vikunni.....en eins og hún Lilja sagði þá er vikan bara mánudagur og þriðjudagur því að miðvikudögum er maður að hugsa um að á morgun sé fimmtudagur sem að er fyrsti flöskudagur vikunnar ( ekki það að ég sé eitthvað að nýta mér flöskudaga vikunnar....óttalega léleg við þetta) og svo er bara komin föstudagur og þá er helgin komin....en það versta við þetta allt að þetta er bara satt hjá stelpunni....mér finnst dagarnir fljúga áfram enda er komin nóvember á morgun og þá getur maður byrjað að fá kvíða köstin og hugsað: afhverju var ég ekki nógu dugleg á önninni því núna þarf ég að gera þetta allt á of stuttum tíma. Maður virðist ekki læra af reynslunni og gerir þetta önn eftir önn.....og þar sem að ég er á næst seinustu önninni minni í MH þá er enn von að mér takist að koma í veg fyrir þetta þó að það sé ekki nema bara á útskriftar önninni minni.....eins og einhver sagði einhvern tíman: Batnandi manni er best að lifa :)
Posted at 06:40 pm by bingokula
Sunday, October 30, 2005
já kamillute er alveg stórmerkilegt te....það finnst þjóðverjum allavegana því í hvert skipti sem að maður vogaði sér að hnerra þar eða hóst var þessu ógeði hellt ofan í mann og á endanum var manni hreinlega farið að finnast þetta blessaða te gott....er einmitt rétt í þessu að drekka þetta umtalað te....í þetta skiptið ekki ánægjunnar vegna heldur vegna þess að ég er bara að fá hálsbólgu enn einu sinni.....held að það þurfi að fara að taka úr mér hálskirtlana, er hreinlega alltaf með hálsbólgu...gæti farið í margskonar not fyrir kamillu aðra en að nota hana í te...hægt er t.d. að nota hana sem græðandi og sótthreinsandi og margt fleira en ætla ekki að þreyta ykkur með því....
en svo er ég að sema þessu stórmerkilegu ritgerð mína sem að fjallar um tímaritið skemmtileg vinagleði og var gefið út af honum Magnúsi G. Stephensen árið 1797.....alveg stórmerkilegt og alls ekki niðurdrepandi....en þetta verður víst að gerast ef að ég ætla að ná þessum blessaða íslensku áfanga...sem að er reyndar ekkert í hættu þar sem að við erum búin að taka próf úr Sjálfstæðu fólki ( algjörlega snilldarbók) og stóð konan sig bara svona feiknavel.....þannig núna ætlar mín bara líka að massa þessa blessuðu ritgerð :)
En það er alltaf jafn mikið að gera hjá manni og á eftir er ég að fara að sjá um kaffihúsa-ferð AFS og þarf ég að vera komin niður á kaffikúltúr a klukkan 4 þannig að ef að þið eruð AFS-arar endilega látið sjá ykkur....alltaf stemming hjá okkur....er samt að hugleiða að taka tölvuna með svo að ég geti verið að vinna....verð reyndar ekki ein sem að er ekki nýkomin heim, Arnar og Atli ætla líka að vera þarna þannig að maður endar kannski bara á því að spjalla í staðin fyrir að vinna....á það frekar mikið til að gerast í mínu tilviki....er nefnilega algjör meistari í því að koma mér hjá því að gera það sem að ég á að vera að gera...eins og t.d. núna á ég að vera að læra en fannst meira spennandi að blogga svolítið :)
en þar sem ég þarf að fara að sækja "litlu systur" (skiptineman okkar) mína sem að gisti hjá vinkonu sinni og vill koma heim núna verður þetta ekki lengra í bili.....
Posted at 12:25 pm by bingokula
Friday, October 28, 2005
jæja mín er ekki látin....veit nú reyndar ekki hvort að það sé eitthvað lið ennþá að lesa þessa síðu en allavegana ef að þið kíkjið hérna við nennið þið þá að kommenta svo að ég geti tekið ákvörðun hvort það sé nú þess virði að byrja að henda einhverju attur inn hérna......
en já það er sem sagt farið að snjóa úti, skiptinemanum sem að býr hérna til mikillar skemmtunar, en mér er nú lítið skemmt...bara kuldi og ógeð....en alltaf nóg að gera hjá menni og er núna verið að leita sér að einhverri skemmtilegri vinni og kannski að maður fá eitthvað i næstu viku en það veltur allt á prufunni sem að ég er að fara í þannig að það er ekkert annað en að krossleggja fingur.....
svo náttúrulega þegar maður byrjar að skrifa hérna lendir maður í hinni mestu ritstíflu en ég var sko með fullt af sniðugum hlutum hérna áðan til að segja ykkur....ekki alveg að virka í augnabilikinu.....en það er sem sagt að koma helgi og það er nú ekki margt skemmtilegt á dagskrá þar sem að það er svo mikið af verkefnum í gangi í skólanum eins og er að ég held að ég sé bara að kafna....kannski er þetta bara soldi manni sjálfum að kenna þar sem að maður er mjög duglegur við að draga allt fram á seinustu stundu..held sko alveg að ég sé meistarinn í því...en þar sem að hún Hildur mín vinnur niður í bæ ætlar hún að hafa augun opin fyrir myndarlegum piltum fyrir mig og svo er Lilja líka eitthvað að fara að keyra fólk og hún er nú líka ansi glögg á þetta....ekki það að maður sé ekki sjálfri sér nóg ef að ég vitna í hana Hildi Mist ;)
en svo er ég komin í svo mikin jólafíling að það hálfa væri nóg....en þeir sem að þekkja mig vel vita hve mikið jólabarn ég er og er löngu farin að telja niður dagana !!!! jólalögin komin í spilun en ég er nú samt búin að hemja mig enn sem komið er með jólaskreytingar.....jafn vel mér finnst það ekki alveg vera tímabært.....en það styttist óðum :)
en ætla að fara að hreyfa mig svo að maður geti gúffað í sig lúxuslengjunni sem að ég bakaði í heimilisfræði í gær í mig :)
Posted at 05:43 pm by bingokula
Wednesday, August 31, 2005
Jæja ég var nú víst búin að lofa að henda inn einhverri ferðasögu hérna.....en já við stöllurnar vorum sem sagt á 5 vikna ferðalagi sem að heppnaðist svona ótrúlega vel og við skemmtum okkur alveg konunglega og ef að ég ætti að segja ykkur frá öllu sem að við gerðum þá væri ég alveg að fara að skrifa nokkrar blaðsíður þannig að ég ætla bara að reyna að stikla á stóru :)
20.júli....flugu eldhressar til Köben til að lenda þar í rignignu sem að var allt í lagi þegar uppi var staðið...náuðum sem sagt að finna farfuglaheimilið hjálparlaust þar sem að við lentum í vesen sem að fól í sér að við fengum ekki að vera allar í sama herberginu þannig að við drógum og aumingja Auður lenti í því að sofa ein í herbergi.....svo eyddum við bara deginum í að skoða miðbæinn...strikið, hafmeyjuna og nyhavn og þegar við vorum að gæða okkur á fyrsta bjórunum í ferðinni þá byrja þetta úrhelli og við urðum alveg blautar í gegn við að sötra þennan bjór.....
21. júlí....lögðum eldsnemma af stað til að fara í lest til HAmburgar og þaðan til Berlínar og þetta var svona lest sem að keyrir inni bát og maður fer í 40 mínútna siglingu frá DK til DE og það var bara ótrúlega fyndin lífsreynsla að sofna í lest og vakna í skipi....komumst svo á endanum til Berlínar þar sem að hún Sabrina mín beið ettir okkur á lestarstöðinni og við fórum heim til Schulzendorf í grillveislu hjá familiunni....eyddum svo 4 nóttum í Berlín og sáum alveg heilmikið þar og hittum skemmtilegt fólk...
25.júlí....tókum lest frá Berlín til Weimar þar sem að foreldrar mínir biðu ettir okkur til að keyra okkur heim til Magdala með stuttu stoppi á knæpunni í næsta bæ....skáluðum í kampavín þegar við komum heim og er ekki frá því að stúlkurnar hafi orðið dálítið hífaðar....gistum í 3 nætur í Magdala og fórum og skoðuðum Weimar betur og vorum svo bara í rólegheitunum í sólbaði við sundlaugina okkar og svo átti pabbi minn afmæli þannig að við héldum upp á það og svona....
28.júlí....ferðinni fyrst heitið til Dresden og þaðan til Prag án þess að vera með bókaða gistingu eða neitt....redduðum gistingu fljótlega á mistraustvekjandi hosteli en það var hreint og það var það sem að skipti mestu máli.....það var allt of heitt í Prag þannig að maður var alveg að leka niður sérstaklega þar sem að mín tók upp á því að fá hálsbólgu og hita....en skoðuðum alveg heilmikið í Prag og silgdum á ánni og allt....alveg rosalega gaman í þessari borg !!!
29. júlí....tókum lest til Vínar um kvöldið og lentum í seinkunum og látum og rétt náðum inn á hostelið okkar áður en að lobbyan lokaði.....röltum bara aðalega um Vín og skoðuðum dýragarð sem að var byggður fyrir einhvejra keisaraynju og fór líka á listasýningu með fullt af frægum verkum og meðal annars eftir Picasso og Vincent van gogh eða hvernig sem að það er skrifað....vorum 2 nætur í Vín....
31.-1. ágúst....tókum lest um kvöldið og vorum komnar um morgunin til Ítalíu eða nánar til tekið til Cesena sem að er rétt hjá Bologna og hinum vinsæla ferðamanna stað Rimini....en hann Simone vinur hennar Auðar á heima þar og við skelltum okkur bara í heimsókn til hans....gistum í 3 nætur hjá honum og okkar aðal afþreying var að skella sér á ströndina :)
5. ágúst....tókum enn eina lestina og í þetta skiptið héldum við til Flórens sem að er btw alveg ótrúlega flott borg...en þar gistum við í 2 næstur....skoðuðum bæinn vel og lengi og kíktum líka á Davíðsstyttuna frægu og biðum í næstum því 2 tíma í röð í alveg massívum hita en það var alveg þess virði þar sem að þetta var alveg frekar flott.....
7.ágúst héldum til Pisa til að stoppa bara yfir daginn og skoðuðum skakka turninn og gerðum heiðarlegar tilraunir til að rétta hann þó að það hafi nú lítið hjálpað....svo var það bara lest til Torino þar sem að hún Auður var skiptinemi....gistum þar í alveg 5 nætur og skoðuðum Torino vel og svæðið í kring...fórum á kvikmyndasafn og heilmikið annað...fór til að mynda í mat til AFS konu sem að var ekkert smá fyndið og talaði um stóru AFS fjölskylduna :)
12. ágúst lögðum við af stað til Frakklands og lenntum í bölvuðum lestartöfum þar sem að ég hélt að ég myndi deyja í einni lestinni þegar hún stoppaði á miðri leið og slökkt var á loftkælingunni.....þurfti mikið til að róa mig :) en komumst loksins til Gien þar sem að hún Manúela býr ( vinokan Auðar) og við gistum 4 nætur hjá henni og þar var bara unnið í að'verða brúnar þannig að það var ekki mikið annað uppbyggilegt gert hjá henni....en var samt alveg ótrúlega gaman hjá henni :O)
16. ágúst....lest tekin þangað sem að hún Hjördís átti heima....lestin fór til Annesy og við vorum sóttar þangað og keyrða heim til Coppenix...gistum í 3 nætur þar og skelltum okkur á meðan til Genf og skoðuðm borgina og skelltum okkur á einvhejra útitónleika með frekar tæpri ska hljómsveit.....svo fórum við líka til Chamonix þar sem að Mount Blanc er (hæsti tindur í Evrópu fyrir þá semað ekki vita) :)
19. ágúst þá var haldið í næst seinustu lestarferðina og fór hún til Parísar.....þar gistum við í 2 nætur og fórum upp í Eiffelturninn og skoðuðum nýlistasafnið Pompedu og Notredam og fullt annað.....versluðum svo pínu og ég verð að segja að París er bara frekar heillandi borg :)
21. ágúst....seinasta lestarferðin.....tékkuðum okkur inn í Eurostar og héldum til London.....gistum þar fram á 24. versluðum vel og lengi í London og skoðuðum okkur um...skelltum okkur á söngleik með Evan McGregor, Guys & Dolls, ekkert smá gaman að fara á svona uppsetningu og auðvita skemmdi aðalleikarinn ekki fyrir :) skelltum okkur líka á Madame Tusseau sem að er náttlega bara áhugavert :)
24. ágúst....þá var dagurinn bara runninn upp....kominn tími á að fara heim....kláruðum að versla og svo var það bara út á flugvölll....seinkunn á flugin og tilheyrandi leiðindi en það var samt í góðu og áður en að við vissum af var klukkan orðin 23:40 og við lentar heima á klakanum
og þegar uppi er staðið var þetta náttúrulega bara hið mesta snilldar ferðalag....vona að einhver hafi nennt að lesa í gegnum þetta þar sem að ég var alveg heila eilfíð að skrifa þetta :)
en trúið mér...þið verðið að fara á interrail.......
Posted at 04:18 pm by bingokula