Entry: Hálskirtlar Tuesday, March 07, 2006



Hvað ætli málið sé með hálskirtlana......þeiru eru þarna og hljóta að þjóna tilgangi enda gera þeir það:
(tekið af vísindavef háskólans)
Hálskirtlar eru gamalt heiti á líffærum úr eitilvef sem heita réttu nafni gómeitlur (e. palatine tonsils) en eru einnig nefndir kverkeitlur. Eitlur (e. tonsils) tilheyra ónæmiskerfi líkamans og taka því þátt í vörnum hans gegn sýklum.

Eitlur eru alls fimm, tvær gómeitlur, tvær nefeitlur og ein kokeitla, og raða þær sér í hring í kokinu. Eitlurnar liggja þétt upp að slímhúð á ákveðnum stöðum í nefholi og kverkum og eru staðsettar þannig að eitilfrumur í þeim geti náð sýklum á leið inn í líkamann með fæðu og lofti sem við öndum að okkur.

Við störf sín geta eitlur sýkst og við fáum eitlubólgu (e. tonsilitis). Sýkist eitla oft gerir hún meiri skaða en gagn og getur þá þurft að fjarlægja hana. Hinar eitlurnar sem eftir eru sinna þá hennar störfum að mestu leyti. Þess vegna getum við verið án þeirra þótt betra sé að hafa eitlurnar allar.

    Þannig að það er alveg búið að sanna að þeir þjóna tilgangi....skil ekki afhverju það þykir ekkert tiltöku mál að kippa þeim bara sí svona úr....en ég er sem sagt að fara í hálskirtlatöku á föstudaginn og er bara ekkert sátt við að þeir ætla bara að taka eitthvað líffæri úr mér og henda  því og svo bara senda mig heim 5 tímum seinna.....

  

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments