|
.....hvenær er hægt að segja að maður sé orðinn fullorðinn, er það einhver sérstakur dagur á ári eða þegar maður verður ákveðið gamall.....ég get sagt í fullri hreinskilni að ég þekki fólk sem að er orðið "fullorðið" samkvæmt kerfinu en í rauninni að mínu mati er það ekki fyrir 5aur fullorðið....ekkert frekar en ég sjálf....en núna á ég að heita fullorðin samkvæmt kerfinu og þarf að borga skatta og bera ábyrgð á því sem að ég segji,geri og skrifa undir því að ég á engan forráðamann lengur....en afhverju upplifir maður sig þá ekki fullorðin....það er enn komið fram við mann eins og krakka og maður verður alltaf barn foreldra sinna og ég horfi jafnvel enn á teiknimyndir......ég er með kenningu afhverju svona mörgum liggur á að eignast börn ung en það er afsökun fyrir að verða í raun aldrei fullorðin.....þarft bara að vera fullorðin í smá tíma þangað til að maður er búinn að unga út einu barni og þá getur það farið að hegða sér eins og barn aftur...leikið sér og horfa á teiknimyndir með barninu (nema það hafi aldrei hætt því eins og ég)....þanngi að ég held að niðurstaðan sé sú að ég verði að fullorðnast fyrr eða seinna þar sem að ég er ekki að fara að unga út einu stykki barni á næstunni.........
|