Entry: Húsdýragarðurinn...... Wednesday, April 12, 2006



Í dag las ég í blaðinu að fjölgun hafi orðið í húsdýragarðinum, en það er þannig að geit í garðinum átti kiðling....og það var heldur betur stór grein um þetta og meira segja mynd af móður og unganum en öllum heilsaðist vel eftir atvikum......

þá kemur sú hugsun upp hjá mér að maður sé nú heldur betur ekki merkilegur þar sem að ef að ég tæki upp á því að unga út eins og einu stykki barni þá kæmi nú mest lítið um það í blaðinu og hvað þá mynd af mér....og ég veit ekki betur að vinir mínir sem að eru búin að eignast börn á seinasta heila árinu að ekki hefur heldur neitt komið um það í blaðinu......þá er pælingin eru húsdýrin orðin merkilegri en við? á maður að setja sér það markmið að komast í blaðið eingöngu fyrir það að pillan eða smokkurinn hafi klikkað?

góð pæling !


   5 comments

Tryggvi...
April 17, 2006   09:05 PM PDT
 
Veistu Rannveig, Það er alveg klárt mál að þú ert uppáhalds uppáhalds uppáhalds mágkona mín! (Nema kannski fyrir utan þessa norsku sem Ísak var að dandalast með um daginn) Það að þú sért mágkona mín veitir mér á hverjum degi mikinn kraft til að takast á við daglegar raunir. Það að smyrja smjör á brauð var mér áður lífsins ómögulegt án þess að gera gat á mitt brauðið... en í dag get ég meira að segja smurt ristað brauð án þess að brjóta það!

Bróðir minn er heppinn að eiga jafn yndislega ástmey og þig.
Tanni
April 16, 2006   09:21 PM PDT
 
Ég ætlaði ekki að bíta þig svona fast. Fyrirgefðu.
Gugga
April 15, 2006   11:25 PM PDT
 
Á þetta kannski að vera svona? var Atli aftur að fikta? hehehe
Gugga
April 14, 2006   08:48 PM PDT
 
Afhverju er þetta svona? :( hlakka alltaf til að lesa hjá þér en núna get ég það ekki :(
Gréta
April 13, 2006   11:09 AM PDT
 
What??????

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments